Hér má nálgast upplýsingar um áætlun Hríseyjarferjunnar Sævars, afþreyingu í Hrísey, gistingu, skoða myndir og ýmislegt fleira.
Flýtilyklar
Bakki sumarhús
Bakki í Hrísey er á tveimur hæðum, þ.e. kjallari og efri hæð, alls um 80 fm. Húsinu fylgir heitur pottur og stór verönd með dásamlegu útsýni yfir Eyjafjörðinn. Í kjallara eru tvö svefnherbergi, annað lítið með tveimur kojum en hitt stærra með tveimur rúmum o.fl. Í kjallara er ennfremur bað og sturta þar sem hægt er að hafa afnot af þvottavél. Á efri hæðinni er eldhús, stofa og svefnherbergi með hjónarúmi og þar inni er hægt að hafa barnarúm (sem er í húsinu). Í húsinu eru sex rúmstæði og þeim fylgja sængur og koddar. Fólk þarf sjálft að koma með sængurföt. Hægt er að bæta við dýnum en í húsinu eru 2-3 dýnur. Nánari upplýsingar lindamar@internet.is og á heimasíðunni bakkihrisey.wordpress.com

























