Hrísey - Ferðaþjónusta

Hús Hákarla Jörundar Í þessu elsta húsi Hríseyjar er nú búið að koma upp vísi að sýningu sem tengist hákarlaveiðum við strendur Íslands fyrr á öldum.

Ferðaþjónusta


Hús Hákarla Jörundar

Í þessu elsta húsi Hríseyjar er nú búið að koma upp vísi að sýningu sem tengist hákarlaveiðum við strendur Íslands fyrr á öldum. Húsið var byggt á árunum 1885-86 af Jörundi Jónssyni, eða Hákarla-Jörundi úr timbri norskra skipa er fórust við Hrísey, þann 11. september 1884. Húsið hefur verið gert upp og fært í upprunalegt útlit. Húsið er opið alla daga vikunnar frá 1. júní- 31. ágúst og utan þess tíma er hægt að hafa samaband í síma 695-0077 eða senda fyrirspurn á hrisey@hrisey.net


Holt - hús Öldu Halldórsdóttir

Alda Halldórsdóttir var fædd árið 1913 og bjó hún í Holti ásamt móður sinni. Mikið af hannyrðum eftir Öldu eru í húsinu einnig er mikið af ljósmyndum af vinum hennar og ættingjum. Í Holti er nú vísir að byggðasafni en Alda ánafnaði Hríseyjarhreppi húsinu eftir sinn dag. Ef áhugi er á að skoða húsið er hægt að hafa samband í síma 695-0077 eða senda fyrirspurn á hrisey@hrisey.net.


Vagnferðir á dráttarvél

Dráttarvélaferðirnar eru sérstaklega vinsælar, en það er um 40 mín. skoðunarferð á heyvagni með leiðsögn. Frá 1. júní - 31. ágúst er boðið upp á ferðir fjórum sinnum á dag kl. 10.00, 12.00, 14.00 og 16.00. Farið er frá húsi Hákarla Jörundar, hægt er að panta ferðir utan þess tíma og er þá greitt lágmarksgjald kr. 5.000. Nánari upplýsingar í síma 6950077 eða á hrisey@hrisey.net 


 
Vitaferðir

Boðið er upp á vitaferðir sem hafa notið mikilla vinsælda. Útsýni við vitann er stórkostlegt og hreint ótrúlegt að upplifa þar miðnætursólarlag.
Ferðirnar taka um eina og hálfa klukkustund.
Hægt er að panta ferðir í síma 695-0077 og á hrisey@hrisey.net 
Lágmark í ferð eru fimm manns


Fuglaskoðunarhús 

Fuglaskoðunarhúsi hefur verið komið fyrir við svokallaða Lambhagatjörn og má sjá þar margar tegundir af öndum og vaðfuglum. Helstu ástæður fyrir þessu óvenjumikla fuglalífi eru að allt fugladráp og eggjataka eru bönnuð í eynni og þar finnast ekki refir, minkar, mýs eða rottur. 


Gallerí Perla - handverkshús

Gallerí Perla er handverkshús í Hrísey, það er til húsa í gamalli verbúð sem stendur við höfnina. Stofnaður var hópur handverkskvenna í Hrísey upp úr 1990 og fékk hópurinn húsið til afnota. Miklar endurbætur voru gerðar á húsinu með fé sem safnað var og var vinnan við húsið sjálfboðavinna.  

Í Galleríinu er til sölu ýmislegt handverk sem að mestu er framleitt í Hrísey má þar nefna prjónavörur, handgerð kerti, málverk, sultur, vörur úr bláskel og minjagripir.

Galleríið er opið frá 15. júní - 15. ágúst alla daga vikunnar kl. 13.00-18.00 en utan þess tíma má alltaf hringja ef áhugi er á að skoða vöruúrvalið. Árlegur jólamarkaður er í lok nóvember og byrjun desember, þá fær húsið jólalegan svip og boðið upp á smákökur og súkkulaði. Nánari upplýsingar veitir Hanna Eyrún í síma 847-6918 og hannaea@simnet.is

 

Íþróttamiðstöðin í Hrísey, sundlaug og líkamsrækt

Austurvegi 5.

Sími: 461 2255

Í Hrísey er ný og góð sundlaug fyrir alla aldurshópa með sérstakri barnalaug og heitum potti.

Sjá nánar í valmynd.


Veitingar

Veitingahúsið Brekka er opið 15. maí - 15. september frá kl. 11.30. Utan þess tíma er hægt að panta þjónustu með fyrirvara í síma 695-3737. Almennar veitingar, vínveitingar og ís í vél. Boðið er upp á gistingu í tveggja manna herbergjum. Sími:. 466-1751 / 695-3737.


Verslun og veitingar Júllabúð sími: 466- 1707 email: jullabudin@gmail.com 

Þjónusta

Sundlaug sími: 461-2255
Sparisjóður sími: 466-1800
Pósthús sími: 466-1800
Hraðbanki er á staðnum

Í eynni er fótboltavöllur við gönguleiðina sem hægt er að leika sér á .  

Framsetning efnis

Hrísey | 4.8°C | 2 m/s
contact
sitemap
moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf