Hrísey - Ferðaþjónusta

Samþykktir fyrir Ferðamálafélag Hríseyjar. 1. kafli Um nafn varnarþing og tilgang. 1. grein. Nafn félagsins er Ferðamálafélag Hríseyjar,

Ferðamálafélag Hríseyjar

Samþykktir fyrir Ferðamálafélag Hríseyjar.

1. kafli

Um nafn varnarþing og tilgang.

1. grein.

Nafn félagsins er Ferðamálafélag Hríseyjar, skammstafað FMH. Heimili þess og varnarþing er í Hrísey.

2. gr. 

Tilgangur FMH er að:
1. Sameina krafta fyrirtækja og annarra þjónustuaðila í Hrísey

2. Vinna sameiginlega að kynningu og markaðssetningu á Hrísey sem          sjálfbæru samfélagi, m.a. með því að halda úti öflugri sölu-heimasíðu um Hrísey

3. Vinna að og halda utan um Green Globe 21 vottun eyjunnar

4. Standa fyrir viðburðum og sýningum í Hrísey

5. Efla innbyrðis tengsl og þekkingu fyrirtækja í Hrísey

6. Vera sameiginlegur málsvari, sem hvetur til jákvæðrar umfjöllunar um samfélagið í Hrísey 

7. Annast rekstur vagnferða og upplýsingarmiðstöðvar í Hrísey 

2. kafli

Aðild að samtökunum

3. gr.

Aðild að FMH geta átt öll fyrirtæki, félagasamtök, stofnanir  og einyrkjar sem stunda atvinnurekstur í Hrísey.  Áhugamenn um tilgang félagsins geta gerst aðildarfélagar.

4. gr.

Þeir sem uppfylla skilyrði 3. greinar og eru skuldlausir við félagið, miðað við aðalfund, teljast fullgildir félagar í FMH.

5. gr.

Ekki er hægt að víkja neinum úr félaginu, nema hann hafi gerst brotlegur við samþykktir þess. Meðlimir teljast þó hafa sagt upp félagsaðild sinni ef þeir skulda árgjald síðastliðins árs þegar kemur að aðalfundi.

3. kafli

Skipulag samtakanna

6. gr.

Aðalfundur er æðsta vald félagsins.  Stjórn FMH fer með ákvarðanir og vald fyrir hönd félagsins á milli aðalfunda.  Stjórn skal þó boða til a.m.k. eins almenns félagsfundar á ári á milli aðalfunda til að upplýsa félagsmenn um starfsemina og skapa umræður um hana.

4. kafli

Árgjöld

7. gr.

Starfsár FMH er á milli aðalfunda og reikningsárið er almanaksárið

8.gr.

Aðalfundur skal ákveða árgjald til félagins.  Árgjald fer eftir fjölda stöðugilda hjá viðkomandi aðildarfélagi á aðalfundardegi FMH. 
Í þrepi eitt eru þau aðildarfélaög sem hafa 0-4 stöðugildi,
í þrepi tvö er þau sem hafa 5-9 stöðugildi   
í þrepi þrjú eru þau sem hafa 10 eða fleiri stöðugildi. 
Árgjald áhugamanns er fjórðungur af árgjaldi í þrepi eitt.

9. gr.

Árgjald skal renna til rekstur félagsins.  Stjórn er einnig heimilt að ráðstafa fjármunum í sérverkefni sem tengjast markmiðum og tilgangi félagsins.  

5. kafli 

Atkvæðisréttur

10.gr.

Atkvæðisrétt hafa allir skuldlausir aðildarfélagar.  Skrá yfir félaga skal liggja frammi á aðalfundi félagsins.

6. kafli

Aðalfundur

11.gr.

Aðalfund félagsins skal halda fyrir lok marsmánaðar  ár hvert og skal til hans boða bréflega eða/og með tölvupósti með minnst tveggja vikna fyrirvara.  Aðalfundur er æðsta vald í málefnum félagsins.
Aðalfundur er lögmætur ef löglega er til hans boðað.
Rétt til fundarsetu með málfrelsi, tillögu- og atkvæðisrétti hafa skuldlausir félagar í FMH. Þá hafa gestir stjórnar FMH heimild til fundarsetu með málfrelsi.

12. gr.

Á dagskrá aðalfundar skulu m.a. vera þessi mál:
1.  Skýrsla stjórnar fyrir liðið starfsár.
2.  Reikningar félagsins fyrir liðið reikningsár.
3.  Kosningar í trúnaðarstöður.
4.  Kosning  endurskoðanda.
5.  Umræður og atkvæðagreiðsla um önnur mál

13.gr.

Í stjórn FMH eru 3 og 3 til vara.  Stjórnin fer með æðsla vald í málefnum FMH milli aðalfunda.  Starfstími stjórnar er frá aðalfundi til aðalfundar.  Stjórnarfundur er lögmætur ef 3 eru mættir (aðalmenn eða varamenn).  Sameinuð stjórn og varastjórn skiptir með sér verkum og kýs á fyrsta fundi sínum eftir aðalfund;  formann, gjaldkera og ritara ásamt varamönnum fyrir hvert embætti fyrir sig.
Stjórnarmenn skulu kosnir á aðalfundi. 
Kjörtími stjórnarmanna er eitt ár í senn.
Rita skal fundargerð um það sem gerist á aðalfundi, þar með taldar fundarsamþykktir.

14. gr.

Stjórnin skal funda eftir þörfum.  Fund skal halda ef minnst tveir stjórnarmenn óska þess.  Halda skal fundargerðarbók um það sem gerist á fundum stjórnar.
Vegna stærri verkefna getur stjórn skipaö sérstakar nefndir til að stýra þeim verkum.  Í þær nefndir skal skipa a.m.k. einn stjónarmann, auk tilnefndra fulltrúa úr hópi félagsmanna.  Stjórnin getur einnig tilnefnt fólk, sem ekki hefur aðild að félaginu, þyki þess þurfa.

7. kafli

Ársreikningar

15. gr.

Gjaldkeri sér um öll peningamál, þ.m.t. ábyrgð á færslu bókhalds. Endurskoðandi skal annast endurskoðun reikninga FMH, en gjaldkera er skylt að hafa reikningana tilbúna fyrir 15. mars ár hvert.
Viku fyrir aðalfund skulu endurskoðaðir reikningar liggja fyrir hjá gjaldkera FMH félagsmönnum til kynningar.


8. kafli

Ýmiss ákvæði

16. gr.

Tillögur til breytinga á samþykktum þessum skulu sendar til stjórnar FMH, er leggur þær fyrir aðalfund. 
Tillögurnar skulu hafa borist a.m.k. þremur vikum fyrir aðalfund, til þess að hægt sé að geta þeirra í fundarboði, enda verða engar breytingar á þeim samþykktar svo lögmætt sé, nema þeirra hafi verið getið í fundarboði.
Til breytinga á samþykktum FMH þarf 2/3 greiddra atkvæða á aðalfundi.

17. gr.
Samþykktir þessar öðlast gildi á aðalfundi FMH - Ferðamálafélags Hríseyjar.

Bráðabirgðaákvæði

I
FMH sér um að koma af stað vinnuhóp sem mun halda utan um skipulagningu og framkvæmd "Fullveldishátíðar Hríseyjar." Enda tilgangur hátíðarinnar að standa undir sér á allan hátt.

II
Félagsgjald fyrir starfsárið 2010-2011 er sem hér segir:
Þrep eitt:   16.000 kr
Þrep tvö:   30.000 kr
Þrep þrjú:  50.000 kr

Samþykkt á aðalfundi 22. apríl 2009, þar sem gerð var nafnabreyting og rekstri Markaðsráðs Hríseyjar breytt í Ferðamálafélag Hríseyjar.

 

Framsetning efnis

Hrísey | -1.1°C | 3 m/s
contact
sitemap
moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf