Hér má nálgast upplýsingar um áætlun Hríseyjarferjunnar Sævars, afþreyingu í Hrísey, gistingu, skoða myndir og ýmislegt fleira.
Flýtilyklar
Jörundarhús

Hús í Hrísey á Eyjafirði.
Sumar sem vetur
Ef þig langar að skreppa út í náttúruperluna Hrísey og dvelja þar í friði og ró, þá hefur Ferðaþjónustan Farvegur ehf. hús til að leigja þér.
Húsið heitir Jörundarhús og stendur niður við fjöruborðið í miðju kauptúninu. Hríseyjar-ferjan býður upp á ferðir í eyna frá Árskógs-sandi allt að tíu sinnum á dag yfir sumar-mánuðina. Upplýsingar um ferjuna er að fá í síma 466 1797. Það er um fimm mínútna gangur frá bryggju í húsið, nokkrar mínútur að ganga í verslun og hraðbanka, sundlaug með heitum potti er rétt við húsið. Í eyjunni er veitingahúsið Brekka og skemmtileg minjagripaverslun á sumrin. Húsið er allt hið snyrtilegasta, með garði sem liggur að fjöruborði. Jörundarhús stendur við Austurveg 10. Gengið er upp bryggjuna, til hægri inn á Austurveg , framhjá sundlauginni.
Jörundarhús er um 120 fermetra hús á tveimur hæðum og skipast þannig í herbergi:
Í húsinu eru þrjú svefnherbergi, eldhús og tvær samliggjandi stofur, snyrting á báðum hæðum. Baðkar og sturta er í baðherbergi á neðri hæð. Rúm eru búin sængum og koddum, hægt er að leigja sængurfatnað og handklæði á staðnum. Rúmstæði eru fyrir 7 manns, að auki eru góðir beddar og sófi í stofu sem má sofa í.
Gestir þurfa að hafa með sér lín á rúm eða nota eigin svefnpoka, handklæði og diskaþurrkur, eða leigja það hjá umsjónarmanni. Í eldhúsi er leirtau fyrir 12 manns, pottar, pönnur, samlokugrill, brauðrist, vöfflujárn og hræri-vél ásamt hraðsuðukatli og kaffivél. Uppþvottavél er í eldhúsi. Í stofu er sjónvarp, video tæki og DVd spilari. Lítið sjónvarp er í holi á neðri hæð, útvarp með CD spilara er í stofu. Húsið er hitað upp með hitaveitukerfi og er hlýtt og notalegt allt árið. Þvottavél er á baðherbergi. Lögð hefur verið áhersla á að gera þetta hús að fallegum og hlýlegum íverustað. Í garði eru borð og stólar og 2 kolagrill.
Að vetri til er hægt að stunda skíði við Dalvík og á Akureyri, fara í gönguferðir í Hrísey og á nærliggjandi fjöll og dali. Stutt er frá Hrísey í margar helstu náttúruperlur Norðurlands eins og til Mývatns, í Öxnadalinn, til Siglufjarðar og fleiri spennandi staða. Rjúpan er friðuð í Hrísey og fuglalíf og gróðurfar er afar fjölbreytilegt.
Verð á gistingu : Sumar 2011 Vetur 2011
Helgargisting Kr. 30.000 Kr. 18.000 föstud. til sunnud.
Vikugisting Kr. 45.000 Kr. 25.000 föstud. til föstud.
Mánudagur til föstud. Kr. 20.000 Kr. 18.000 mánud.til föstud.
Leigu fyrir hópa þ.e. fleiri en 10 manns, mun þurfa að semja um sérstaklega, sömuleiðis ef um lengri gistingu er að ræða en að ofan greint.
Ath: Yfir sumarið er aðeins leigð vika í senn en helgar eða stakir dagar þar f.utan.
Verið velkomin í Hrísey, Hildur Jóns og Sigmundur Karl s: 8988551. hildurjons@simnet.is

























