Hrisey - Forsiða

  Hrísiðn var stofnuð í kringum amboðaframleiðslu árið 2004. Stofnendur: Bjarni Thorarensen, vélvirkjunarmeistari og 3

Hrísiðn



 

Hrísiðn var stofnuð í kringum amboðaframleiðslu árið 2004. Stofnendur: Bjarni Thorarensen, vélvirkjunarmeistari og 3 stigsvélstjórn frá Vélskóla Íslands og   Sigríður Magnúsdóttir fiskvinnslukona og húsmóðir. 

Í Hrísiðn eru framleiddar hrífur af öllum gerðum og stærðum, sláttuorf og ýmis konar handverk. Þar er einnig unnin hvönn.

Hrísiðn fékk nýlega  vottun frá vottunarstofunni Tún fyrir lífræna og sjálfbæra framleiðslu við vinnslu náttúrulegra afurða. Sjá hér

•Árið 2007 hófst samstarf  við Saga medica um tilraunavinnslu á hvönn í Hrísey

•Árið 2009 hófst fyrir alvöru vinnsla á hvönn.

•Sumarið 2010 var svo fjárfest í þurrkgám hann innréttaður ásamt vinnslurými og við það jókst framleiðslan.  

•Saga medica er eini viðskiptavinurinn og framleiðir náttúruvörur úr hvönninni.

•Stefnt er að því að fullvinna afurðir úr hvönn í Hrísey.

Nánari upplýsingar um Hrísiðn má nálgast í síma 821-8318 og bjas@internet.is 

 

Framsetning efnis

Hrísey | -1°C | 1 m/s
contact
sitemap
BrekkaSagaTravel
moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf