Flýtilyklar
Þorrablótsannáll 2011
Annáll 2011
Þorrablótshelgina í fyrra átti sér stað sá ánægjulegi atburður að fjögurra manna fjölskylda frá Hafnarfirði flutti til eyjarinnar. Frúin tók að sér deildarstjórn á Smábæ á meðan húsbóndinn þreifaði fyrir sér á öðrum vettvangi, hann var nefnilega í færðingarorlofi. Vinalegir eyjaskeggjar buðu nýbúanum með sér í fótbolta eldri manna en þar eru að spila saman hinir og þessir karlar að ýmsum stærðum og gerðum. Þetta vinalega boð kostaði húsbóndann átta vikur í gifsi. Til að bæta fyrir leiðindin var honum fljótlega aftur boðið að taka þátt í lífi eyjaskeggja og að þessu sinni að skjóta í mark á gömlu ruslahaugunum og skipti engum togum að óreyndi nýbúinn sem aldrei hafði komið nálægt byssu æsist svo svakalega upp við það að freta úr hólknum að hann stökk heim...á hækjunum og beint á frúna og viti menn níu mánuðum síðar er komið barn. Geta má þess að einn af þessum vinalegu eyjaskeggjum var enginn annar en átján barna faðir úr Álfheimunum (Gunnar Páll bjó einu sinni í Álheimum). Álit manna er að Gunni sé orðinn svo þreyttur á barneignum að hann beiti allra ráð við að koma þeim yfir á aðra en þá spyr maður sig líka ef menn æsast svona við að skjóta gæti þá ástæðan fyrir meindýralausri eyju haft eitthvað með barneignir þeirra sem eru duglegastir, að gera. Spurning hvort við látum ekki alla karlmenn eyjarinnar fara út á hauga að skjóta og sjá hvað gerist hvort við náum að yngja aðeins upp hjá okkur. Nú vita allir að Árni Krist hefur verið mjög duglegur að fara í fugl og verður gaman að sjá hvort eitthvað kemur út úr því um mitt næsta ár, allir að fylgjast með Eygló.......
Í fyrrasumar tóku hjónin í Júlíusarhúsi upp á því að flytja suður á bóginn og freista gæfunnar þar.... Húsið var sett á sölu og að sjálfsögðu keypti Elli kokkur það, hann er kominn í bullandi samkeppni við Sigmund um kaup á húsum í Hrísey. Víst er að nafnið var ekki með í kaupunum því kokkurinn var snöggur að endurnefna húsið og skella upp á það skilti með nafninu Maríulundur. Mun það fara fyrir brjóstið á mörgum íbúum og meira að segja svo mikið á sumum að heyrst hefur að húsbóndinn í Þrastarlundi og sonur hans íhugi einhverja nóttina...að spreyja skiltið svart eða hreinlega að fjarlægja það. Það versta við þennan gjörning hjá kokkinum er að nú vita leigjendur hans í Miðbrautinni hreinlega ekkert hvar þau eiga heima. Þau bjuggu hamingjusöm til endaloka í Marílundi þar til fyrrnefndur gjörningur átti sér stað......Viljum við nú koma þeim tilmælum til Ella að hann lagi þetta sem allra fyrst svo parið hætti að haga sér eins og heimilislausir ræflar ráfandi um göturnar með dótið sitt i plastpoka.......
Grunnskólanemendum í Hrísey blöskraði reykingar eyjaskeggja og tóku til sinna ráða. Þau sendu bréf til ráðherra með lausnum á reykingavandanum, bréf þetta birtist í fjölmiðlum og hafði það gífurleg áhrif heima fyrir, skipti engum togum að eyjaskeggjar hættu unnvørpum að reykja. Horfum við nú til nemendanna með mikilli bjartsýni á að þeir taki til við að gera slíkt hið sama varðandi neikvæðni íbúa og beiti sér fyrir því að koma jákvæðu hugarfari inn hjá Hríseyingum t.d með því að senda bréf til Heibrigðisyfirvalda varðandi þessa yfirvofandi ógn okkar í Hrísey.
Bensínkostnaður eins ferjumanns jókst gífurlega þegar nokkrir sniðugir feður tóku sig til og gerðu líka þessa flottu sleðabrekku fyrir börnin sín frá Syðstabæjarhólnum og alla leið niður á Norðurveg, var tekið upp það ráð að loka veginum við pósthúsið og leyfa nú blessuðum börnunum að renna sér þarna til skemmtunar. En þessi ákvörðum var kærð til skipulagsstjóra og lokunarborðar rifnir í burtu vegna fyrrnefndrar hækkunar á bensínkostnaði ferjumannsins en hann reiknaði það út að vegalengdin hans í búðina lengdist um 24 metra með tilheyrandi kostnaði.
Björgvin Pálsson varð áttræður á árinu og tók sér frí hálfan daginn í tilefni dagsins, talið að er þetta sé lengsta frí sem maðurinn hefur tekið sér frá upphafi. Heyrst hefur að svo mikið liggi fyrir hjá Björgvin að þó að hann yrði 120 ára þá næði hann ekki að klára fyrirlyggjandi verkefni.
Fyrrgreindur fyrrverandi hafnfirskur húsbóndi tók að sér að aka dráttarvél Ferðmálafélagsins í sumar og tókst það með ágætum þrátt fyrir að erfitt væri að feta í fótspor fyrirrennara síns á vélinni enda voru íbúar fram í ágúst að bera þá tvo saman.....Sumum þótti hann ekki tala nógu mikið og öðrum ekki nógu hátt en mikil ánægja var meðal túrhestanna sem sátu og skoppuðu á vagninum hjá honum. Eftir sjómannadagsballið hljóp heldur betur á snærið hjá vagnstjóranum þegar hann er að fara fyrstu ferð á sunnudagsmorgninum og er í rólegheitum að keyra niður gamla flugvallarveginn sem er náttúrulega alveg harðbannað segir Brói...en á miðri leið þar niður heyrast miklar drunur og á móts við fuglaskoðunarhúsið kemur snjósleði á mígandi siglingu og á honum situr jakkafataklæddur herramaður og skiptir engum togum að hann þeytist á fleygiferð fram hjá fuglaskoðunarhúsinu og út í tjörnina og fleytir kerlingar yfir hana. Vagnstjórinn stoppar og útskýrir fyrir túrhestunum að þetta atvik sem átti sér stað í friðlandi fuglanna væri partur af prógramminu því þarna hefði nefnilega verið á ferða fuglafræðingur sem var að telja endurnar á tjörninni og besta leiðin til þess væri að komast sem næst fuglunum. Þessi notaði að vísu nýstárlegri aðferðir en hann Steini okkar rjúpa en þar sem hann væri svo upptekinn í sundlauginni og kæmist hvorki lönd né strönd þá þyrfti þetta að duga.
Ole hinn danski leitaði mikið að húsnæði fyrir sig og við nánari eftirgrennslan kom í ljós að danskurinn var hættur að reykja og var orðinn leiður á því að rúnta um bæinn og púa í bílnum og sá fyrir sér að notalegt væri nú bara að leigja sér íbúð til að geta haft það huggulegt við að reykja í laumi.....ekki tókst það hjá Ole og endaði málið þannig að hann keypti sér lítinn skúr á lóðina hjá sér og situr hann nú öllum stundum þar inni og púar eins og hann lystir......Aðspurður segir Ole að vel hafi komið út að reykja kjöt í skúrnum og mun hann bjóða upp á Winston reykt hangikjet og Salem reykt bjúgu fyrir næstu jól, gegn kartoni af sígarettum. Einnig tekur hann við hugmyndum um hvað er hægt að reykja og hvernig.
Guðrún Kristjáns sagði af sér sem hreppstjóri á árinu og var staðan auglýst.....Guðrún hefur nú yfirtekið eldhús Olís á Dalvík og steikir nú hamborgara og samlokur ofan í Dalvíkinga eins og herforingi....Ákveðið var að eftir velheppnaða Fjölskyldu- og Skeljahátið Lindu Maríu að Linda tæki við hreppstjóraembættinu með Þorgeir sem sértækan aðstoðarmann.
Meðalaldur íbúa heldur áfram að hækka í Hrísey og er nú svo komið að menn sleppa úr heilu árunum til að flýta sér að eldast eru dæmi þess að menn sem eru 49 ára og verði svo næst 51 árs. Einn slíkur hélt svaðilega veislu og svignuðu borðin undan kræsingum, á meðan á borðhaldi stóð fræddi afmælisbarnið gesti sína um svöngu börnin í Afríku og lifnaðarhætti þar í landi.....ekki þótti það hafa mikil áhrif á lystina hjá gestunum en á eftir var svo dansað fram á nótt við undirleik Friðjóns og Hrukkudýranna.
Þá snúum við okkur að einu uppáhaldsefni þorrablótsannálsins í gegnum tíðina nefnilega ferjumönnum...... Heyrst hefur að þeir Ruddi og Tuddi vilji nú skipta um vélstjóra á hinni vaktinni því Pétur Birgis sé alltof jákvæður og glaður þrátt fyrir að vera settur á vakt með Tona, þeir telja að hann sýni alltof mikla þjónustulund og sé það ekki í takt við stefnu fyrirtækisins. Þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir skipstjórans til að draga hann niður og ákúrur frá yfirmönnum virðist Pétur ekki ætla að taka það til sín og er nú mikil óvissa með framtíð hans á ferjunni. Komið hefur til tals að auglýsa stöðu hans og mun þá verða algjört skilyrði að nýr vélstjóri heiti ekki Pétur.. mun það hafa skapað nokkur vandræði sökum þess að hinn vélstjórinn hefur nú fengið viðurnefnið “Gamli Pétur” og er alveg ljóst að hans litla hjarta þolir það engan veginn.
Umferðarmenning íbúa
hefur löngum farið fyrir brjóstið á mörgum en þó eru sumir alveg hæstánægðir
með þróun mála. Hreppstjórinn hefur haft orð á því að mikil umferð skapist oft
við skólann á morgnana og hefur ákveðið að taka til sinna ráða, framvegis mun
hún klæðast einkennisbúningi og taka að sér að stjórna umferðinni á milli klukkan
7:45 og 8:15 á virkum dögum. Dæmi eru um það að foreldrar sem eiga fjögur börn
hafi sést koma fjórar ferðir með börnin í skólann og ekki er vitað hvort svona
mikið ósætti er á milli systkinanna eða hvort allir vilji bara fá að sitja
frammí og því brugðið á þetta ráð.
Meira af bílum ......Hermann og Díana hafa fest kaup á langferðabíl og keyrði Hermann suður með tengdapabba til að sækja gripinn og tók svo að sér áætlunarferðina fyrir Norðurleið heim og þótti honum gripurinn bara koma vel út svona fullur af fólki....Ekki hefur verið hægt að fá upp úr Hermanni hvað bíllinn tekur marga en grunur leikur á að hjónakornin séu að stefna að enn frekari fjölgun....eða er þetta kannski bara svo að Helena og Sveinbjörn komist nú með og ekki þurfi að fara á báðum bílunum. Spennandi verður að fylgjast með þróun þessa máls og er fólk er hvatt til þess að taka sérstaklega vel eftir því ef Hermann sést með byssu á öxl á leiðinni austur á hauga.
Vera og Óli hafa í orðsins fyllstu merkingu verið á Hrakhólum þetta árið.....lítið hefur sést til þeirra í eyjunni og álíta menn að þau séu að hreiðra um sig til frambúðar á sléttunni, töluvert hefur borið á því að þau reyni að veiða fólk til sín með alls konar gylliboðum...veislum og afmælum og einnig hafa þau verið að ræna iðnaðarmönnunum okkar til sín er það álit okkar að þau séu hreinlega að reyna að taka með sér íbúa Hríseyjar til að vera ekki ein á sléttunni og biðjum við íbúa Hríseyjar að hafa varann á ser og falla ekki í þessa gildru þeirra og eiga jafnvel ekki afturkvæmt .
Öflugur bátur bættist í trilluflotann okkar á árinu þegar þeir stórhuga bræður Heimir og Jóhannes festu kaup á trébát úr plasti “Öflugi” þeir sigldu stoltir á fleyinu sínu inn í höfnina og heyrðist mönnum að þeir rauluðu fyrir munni sér slagarann ódauðlega frá Gylfa Ægis. Þeir lögðu svo að hafnargarðinum við hlið stórfleytis Alla Bergdal og munu þeir þrír nú skiptast á vöktum við að vakta fleyin.....dag og næturvaktir. Sést hefur til Alla á öllum tímum sólarhrings á vappi með herra Svart í námunda við hafnargarðinn og hafa menn miklar áhyggjur af því að hann sofi aldrei........Það er von okkar að Heimir verði duglegur að taka vaktirnar á meðan hann er í landi.
Bjarni Thor lætur ekki delann síga í bætiefnaframleiðslunni og hans nýjasta útspil er hinn svokallaði Stinningskaldi......mjöður bruggaður í Kalda og inniheldur hann stinningarlyfið Hvönn, bindum við miklar vonir við þennan mjöð varðandi æskilega fjölgun íbúa og erum við alveg sannfærð um að jafnvel ólíklegustu menn muni brátt ná sér á strik aftur og halda áfram þar sem frá var horfið, má þar nefna Ásgeir Halldórs, Árna Krist og fleiri. Til stendur að halda mikla upprisuhátíð í eynni á komandi vori og hylla frjósemisguðinn.
Töluvert hefur borið á því að félagslíf í Hrísey eigi erfitt uppdráttar vegna Útsvars sem er á dagskrá RÚV á föstudagskvöldum, „Pub quizið“ hefur liðið fyrir þetta og nú síðast þorrablótsnefndin því ekki hefur náðst sátt um tímasetningar á fundum nefndarinnar vegna þess að horfa þarf á Útsvar og svo tekur fólk líka einhver kvöld í að undirbúa sig fyrir áhorfið. Það er óskandi að þetta hafi ekki áhrif á félagslífið til frambúðar og horfum við bjartsýn fram á veginn að aftur sé hægt að blása lífi í það eftir Útsvar. Ástandið er orðið það slæmt að rætt er um tímann fyrir og eftir klukkan Útsvar sem minnir óneitanlega á Dallas i denn.
Leikklúbburinn Krafla á mikið hrós skilið fyrir þá gífurlegu uppbyggingu sem farið hefur fram á Sæborg. En Krafla festi kaup á húsinu eins og flestir vita og hyggst endurbæta Sæborg og er nú þegar komin í bullandi samkeppni við Íþróttamiðstöðina með dansleikjahald og viðburði, heyrst hefur að til standi að bjóða upp á meðgönguleikfimi ef rætist úr barneignum. Stjórn Kröflu skipa helstu prjónakonur eyjarinnar og veltir fólk nú fyrir sér hvort húsið verði ullarklætt og eru þá uppi hugmyndir um að betra væri að þæfa ullina svo það verði hlýrra inni.
Eigendur Hellulands fóru hamförum á síðasta ári við endurbætur á húsinu og þykir flestum gaman að sjá breytingar á húsinu. Mál málanna var nýr gluggi sem prýðir nú norðurgafl hússins, fólk gekk í röðum fram hjá húsinu til að skoða gluggann og gá hvort það sæist nú ekki örugglega inn um hann og jafnframt var fólki mjög umhugað um hvort leyfi hafi fengist fyrir breytingunum.
Matthildur Antonsdóttir datt nú heldur betur í lukkupottinn árið 2010 þegar samningar tókust með henni og Ómari Hlyns um stórfelldan innflutning á garni frá Noregi en Ómar vinnur rétt hjá aðalprjónaverksmiðjunni sem framleiðir garnið sem Matthildur ku versla. Svo umfangsmikill er þessi innflutningur að Ómar getur ekki einu sinni keypt sokkapar handa Lindu sinni og hefur fólk nú áhyggjur af því að stórkostlegar nágrannaerjur séu í aðsigi.
Samkeppni í framleiðslu sjávarafurða ? Þeir Hvammsbræður hafa nú tekið upp á að framleiða harðfisk og selja hann grimmt í Eyjabúðinni. Aðspurðir segjast þeir ekki vera komnir í samkeppni við hausaþurrkunina því þar séu menn að þurrka fiskinn í pörtum og flytja burt í bílförmum og veit enginn hvar sá farmur endar en heyrst hefur að Landeyjarhöfn sé nú óðum að fyllast af Strigaböggum. Nýjustu fréttir af þessu máli eru þær að búið er að loka hausaþurrkuninni í Hrísey, vegna gífurlegrar samkeppni á markaði. Nú geta sumarhúsaeigendur snúið aftur í Perlu Eyjafjarðar en sumir hafa ekki látið sjá sig hér þann tíma sem þurrkunin var var starfrækt en nú er hin viðurstyggilega lykt sem legið hefur yfir Hrísey síðan vinnsla hófst horfin. Sumir gengu svo langt að innsigla hús sín á meðan á þessu stóð til að fá örugglega ekki lyktina inn til sín því eins og allir vita eyðileggur hún allt sem hún kemst í tæri við. Það stefnir í að þessi grey geti nú snúið aftur og nýtt húsin sín og þurfi ekki að leigja sér bústaði víðs vegar um landið eins og verið hefur. Við lokun vinnslunnar misstu þrír heimamenn vinnuna en þeir eru allir ráðnir í að ræsta og mála hús í eyjunni til að losna við hina ógurlegu lykt sem tekur hefur sér bólfestu í Hrísey.
Árleg áramótaveisla bakarans og frúar hans var haldin á gamlársdag í Salthúsinu, þessi veisla hefur heldur betur undið upp á sig og segja má að þau hjón séu að vinna mjög þarft samfélagsstarf. Þarna er boðið upp á ýmsa framandi rétti sem eyjaskeggjar myndu sjálfsagt aldrei fá að smakka því eins og allir vita éta þeir aðalega siginn fisk og aðra þjóðlega rétti.
Árni Krist keypti sér skemmu á árinu sem leið aðallega svona til að geyma eitthvað í ekki alveg víst hvað það á að vera en mikill urgur var í mönnum vegna þessara kaupa og eru ekki allir sáttir. Skemman hefur fengið það skemmtilega nafn Valhöll í Hádegismóum.
Eftir áramótin gerðist sá hræðilegi atburður
að Brekkubíllinn brann til kaldra kola hjá Heimi og Gunnu. Við rannsókn málsins
kom í ljós að sennilega er um íkveikju að ræða og liggur nágranninn sterklega
undir grun en verið er að bíða eftir niðurstöðum úr DNA sýnum sem voru tekin á
staðnum og send til Noregs. Heyrst hefur að Ómar Hlyns komi með niðurstöðurnar
heim þegar hann kemur á þorrablótið og mun fara vel um þær innan um garnið
hennar Möttu.
Þegar farið var að rannsaka málið nánar kom í ljós að Smári er búinn að vera að
leita að miðstöð í bílinn hjá sér í langan tíma og hefur sú leit ekki borið
árangur en eins og málið standa hjá honum hefur bíllinn ekki náð að þorna eftir
að Berglind fékk bílinn lánaðan í stórhríðinni hér í janúar og gleymdi víst að
loka hurðinni almennilega og fylltist bíllinn af snjó og þurfti Smári blessaður
að moka sig niður á stýrið morguninn eftir. Ekki er hægt að hafa eftir hér
óhljóðin sem heyrðust í karli þegar hann sá ástandið í bílnum. Hann mun því
hafa rennt miðstöðina hjá Heimi hýru auga og var auðvitað sakleysið uppmálað
þegar Elli kokkur tilkynnti að hann gæti alveg hirt miðstöðina úr
brunarústunum.....en Heimir skilur ekkert í þessu og er alveg gáttaður á því að
einhverjum detti í hug að ímynda sér að kveikt hafi verið í bílnum. Hann er
alveg alsæll með hvað slökkviliðið var fljótt á staðinn þrátt fyrir að
slökkviliðsstjórinn hafi svarað í símann í Reykjavík. En það verður fróðlegt að
fylgjast með framvindu þessa máls og sjá hvort þarna eru í uppsiglingu aðrar
nágrannaerjur.
Heilsugæslan á Dalvík tilkynnti rétt fyrir áramót að nú skyldi skorið niður í Hrísey og það all rækilega því frá og með 1. Febrúar myndi starfsemi stöðvarinnar leggjast niður í eynni. Gífurlegur launakostnaður fylgir því að senda lækni til Hríseyjar einu sinni í viku sem stoppar í einn klukkutíma svo mikill er þessi kostnaður að það er að sliga Dalvíkinga. Hverfisráðið hefur setið á maraþonfundum síðan um áramót við að finna lausn á þessu flókna máli og hafa þau loks komist að niðurstöðu um málið. Niðurstaðan er sú að þetta er alveg ólíðandi en tveir möguleikar eru í stöðunni annar er sá að eyjaskeggjar taki sig saman á þriðjudögum og panti vaktlækni frá Dalvík, þeir verða bara að vera mjög veikir og bera sig sérstaklega illa og hinn möguleikinn er að bjóða upp á hópferðir til Dalvíkur á þriðjudögum. Búið er að ræða við þá kollega Hermann og Sveinbjörn um að sjá um sætaferðir á nýju rútunni, það er hvort eð er aldrei sjóveður. Skýrt kom fram í bókun Hverfisráðsins að eki mætti breyta um dag, þessi þjónusta yrði að vera í boði á þriðjudögum því Hríseyingar eru svo vanafstir að ekki er hægt að lækna þá nema á þriðjudögum. Því eins og menn segja hér á bæ eru þriðjudgar læknadagar. Sem dæmi um þessa vanafestu fundu ýmsir til mikillar einangrunar þegar áætlun ferjunnar var breytt í fjóra mánuði á ári þannig að ferja kl. 3 og 5 voru sameinaðarr í eina kl 4.
Nautabændur voru nú ekki alveg dauðir á árinu (en það eru þeir Kiddi, Almar, Óli Pálmi og Hrannar.) Hrannar flutti suður til Reykjavíkur að vísu snemma árs 2010 og kom lítið við sögu, en kom sterkur inn þagar átti að gera eignarhalds breytingu í fyrirtækinu Holda ehf. í lok ársins en nánar um það síðar. Ágætis heyfengur var hjá þeim í ár og átti nú heldur betur að slá meira með því að bera á skít út um allt og þá aðalega í kringum Michael Jón Clark sem þurftir áfallahjálp, lífgunarhjálp og lögregluhjálp þegar hann ætlaði í samráði við heilbrigðisfulltrúa að stoppa Almar á dráttavélinni og geta menn ímyndað sér hvaða mál Almar notaði í samskiptum við hann. Kiddi ræfillin sem fékk allar símhringingarnar frá Heilbrigðisfulltrúanum tæklaði málið þannig að Almar væri að fara á sjó næstu tvo mánuðina og Mikki Clark væri jafnvel farin úr eyjunni fyrir fullt og allt þannig að þetta væri búið mál að hálfu nautabænda. Svo kom loks af því að hið fræga beitarhólf neðan við fótboltavöllin var nýtt á haustdögum en eitthvað voru menn í erfiðleikum með að reka hjörðina í hólfið og voru margar tilraunir gerðar bæði með hópi manna og dýra. Það tókst á endanum og þá tók nú ekki betra við. Núna fóru beljurnar að stríða Baldri í Sunnuhvoli. Baldur sem er nú meira en 20 vetra í búskaparháttum var nú ekki par ánægður með það þegar að beljurnar fóru trekk í trekk út fyrir girðingu og fóru að éta hinn rándýra trjágróður sem upprunnin er frá Amason frumskógunum sem Hermann hennar Díönnu pantaði í gegnum E-Bay fyrir hann. Enn var Kiddi ræfillin fyrir svörum því Baldur sagðist ekki vilja tala við hina þar sem þeir væru þroskaheftir og bað Jóhann Pétur, Kidda um að gera eitthvað í málinu þar sem umræðan á kaffistofunni á Hvammi snérist bara um beljur, skít og þroskahefta nautabændur. Almar var sem betur fer farinn á sjó. Þegar slitastjórn Glitnis var í New York að reyna að afla tekna, dró til tíðinda í eignarhaldsfélaginu Holda ehf. Almar kom heim af sjónum og núna sprakk sprengjan á milli hans og Óla Pálma, nú skildi gert upp enda Almar komin með fagfjárfesti frá Afríku og málið væri einfalt. Nú kom Hrannar sterkur inn og gerðu hann og Óli Pálmi, Almari og Kidda tilboð um að þeir myndu kaupa þá út fyrir hvorki meira né minna en á aðra milljón króna en það væri þeirra hlutur í hjörðinni sem byggt var á gripaforitinu Hubbu eins og stóð í bréfinu sem sent var í ábyrgðarpósti . Boðað var til stjórnarfundar og kom Hrannar með einkabílstjóra frá Reykjavík til að ná í sinn hlut, en það gekk ekki eftir því tilboðinu var hafnað í stjórn félagsins en þeir áttuðu sig ekki á því félagarnir að það eru fjórir í félaginu og féll þetta á jöfnu. Fagfjárfestirinn hans Almar fór aftur með honum til Afríku og sættust menn á það að starfa áfram saman og þá væntanlega í blíðu og stríðu. ÞETTA ERU STRÁKARNIR OKKAR.
Nú um áramótin lagðist svínabúskapur Kidda af og eru miklar vangaveltur um hvað Kiddi ætli sér að gera með húsið... aðspurður segir hann að þetta sé nú bara í takt við annað í þjófélaginu og vonandi að ástandið fari nú að lagast og sjálfstæðismenn komist aftur til valda, því allt önnur hugarfarsbreyting hafi verið í þeirra daga.

























