Flýtilyklar
Upprifjun Steina rjúpu
Hrísey nafn af höggvið dregur.
Þar heyrist tíðum sjávarniður.
Berst úr sjónum björg á land,
Sem bætir lífsins mannástand,
J.K.N.
Þannig var kveðið í Hrísey um miðbik síðustu aldar. Flest það sem sagt er um þá góðu eyju í blöðum og tímaritum fyrr á árum tengist sjónum og sjávarfangi. Þó kemur það fyrir að minnst er á eitthvað annað í lífi fólksins sem þar bjó, eða býr. En þegar blöð fóru fyrst að koma út hér á landi voru þær fréttir sem bárust frá Hrísey ekki aðrar en þær að menn og konur stæðu í fiskslori upp fyrir haus daga sem nætur. Þannig væri líka ár eftir ár. En sem betur fór var þetta ekki þannig og ýmislegt annað var í gangi. Í þessum pistli valdi ég af handahófi árið 1967. Fór ekki of langt aftur í tímann og heldur ekki of stutt. Enda er þetta ár ekkert verra en önnur í sögu Hríseyjar. Það eru sem sagt fjörtíu ár síðan og nú skulum við horfa til baka og líta yfir farinn veg.
Rétt fyrir áramótin gerði glórulaust ofstopaveður með haugasjó. Skemmdir urðu þó litlar í eynni. Sjór fór í einn dekkbát og raflínur í eynni skemmdust. Goðafoss var hér að taka fiskafurðir og komst hann ekki að bryggjunni vegna mikillar ókyrrðar. Skipa varð því fram á bátum. Eins og oft áður og þykir enn þótti gott að heita á Hríseyjarkirkju. Þetta ár var engin undantekning og alls bárust til kirkjunnar 9.375 kr. Sr.Kári Valson hinn nýji prestur og sóknarnefndin þökkuðu gefendum öllum og færðu þeim innilegar kveðjur. Í janúar var góður afli í eynni þegar gaf á sjóinn sem var ekki mjög oft, því það voru umhleypingar í veðráttunni. Nokkrir íbúar fóru að sjá gamanleikinn Grænu lyftuna sem verið var að sýna í Árskógshreppi og höfðu gaman af. Í febrúar var aðeins einn bátur úti með net og er það öll útgerðin í Hrísey á þessum tíma. Þetta er Auðunn sem fær 7-9 tonn í róðri. Þegar þarna er komið sögu er kominn klofdjúpur snjór og eini ljósi punkturinn í tilverunni er að á þessum tíma er haldið þorrablót sem tekst mjög vel í alla staði. Nokkrum dögum seinna kemur svo suðvestan rok og slitnaði þá trilla Sigurjóns Kristinssonar og rak upp í Lambhagafjöruna og brotnaði í spón. Nú er fiskurinn horfinn og Auðunn fær mjög lítið þó að sá guli sé fullur af loðnu. En vond veður torvelda líka sjósóknina. Í byrjum mars kemur grenjandi stórhríð upp úr þurru. Logn hafði verið um daginn og kyngt niður snjó, en svo hvessti af vestri og gerði snarvitlaust veður og í kjölfarið sást ís út af Eyjafirði. Þegar veðrinu slotaði flykktust Hríseyingar til Akureyrar á ball í Sjálfstæðishúsinu og hlustuðu á Helenu Eyjólfs en hún var þá að byrja að syngja með hljómsveit Ingimars Eydal. Á þessum tíma var nýbúið að myndskreyta allt innanhúss í Sjálfstæðishúsinu. Þar var að verki fyrrum Hríseyingurinn Rafn Sigurðsson dekorat, en hann dvelur nú um eins árs skeið á Akureyri ásamt rússneskri konu sinni. En nóg um það. Ekki voru þessir á dansskónum fyrr komnir heim, en aftur varð brjálað veður og vegna þess var messufall í eynni. Urðum við því að vera án guðsorðs í þetta sinn segir í pistli í Degi. En svo lagaðist veðrið og tveir menn á báti frá Hrísey fengu rúmt tonn á handfæri einn daginn. (Þeir Baddi og Hjörleifur.) Nú er komið fram að mánaðarmótum mars-apríl. Á undanförnum þrem árum hefur Hríseyjarhreppur unnið að allsherjar endurnýjun á vatnsveitukerfi eyjarinnar. Lauk þeim framkvæmdum á sl. hausti og höfðu þá kostað 1.5 milljón króna. Mun kauptúnið nú búa að þessum framkvæmdum um langa framtíð segir Þorsteinn Valdimarsson oddviti í stuttu viðtali við blaðið Íslending þann 30.mars 1967. Aðspurður um næsta verkefni hreppsins sagði Þorsteinn, að það væri að byggja nýjan hafnargarð. Þá sagði hann að mikil vandræði stöfuðu nú af sandburði inn í hafnarkrikann, sem heita mætti fullur af sandi og því ónothæfur. Því væri aðkallandi að girða fyrir sandburðinn, en að auki væri þörf fyrir aukið viðlegupláss í höfninni. Að lokum sagði Þorsteinn "Hríseyjarbyggð stendur og fellur með útgerðinni og umbótum í hafnarmálum". Svo mörg voru þau orð. Sama dag kom Snæfellið til Hríseyjar úr sinni fyrstu ferð á trolli og var með 43 tonn. Svo kom vorið með lóunni, sem kom til Hríseyjar 13.apríl. Nú hópast rjúpan til eyjarinnar og Dr Finnur er kominn til að fylgjast með lifnaðar-háttum hennar og Auðunn fær fimm tonn í hverjum róðri. Á tröppunum á húsi þeirra Jóa Árna og Snæbjarnar er setið á kvöldin og skeggrætt um aflabrögð og annað sem við kemur eynni og þeim sem þar búa. Nú var verið að hækka bensínið um 35 aura. Hvað gera trillukarlar þá ? Eins og sólóvélarnar eyða af þessum dýrmæta vökva sem er kominn upp í 87 oktan.
framhald...................

























