Hrisey - Forsiða

   En það var fleira sem rætt er um þarna í tröppunum á kvöldin og olli körlunum

Framhald upprifjun 1967

  

En það var fleira sem rætt er um þarna í tröppunum á kvöldin og olli körlunum áhyggjum. Nú er það að gerast að  síðustu íbúar Flateyjar á Skjálfanda eru að yfirgefa eyjuna. Tuttugu manns töldu sér þar heimili á þessum tíma. Þetta eru ekki góðar fréttir og menn setur hljóða.
Vorið er kalt í Hrísey þó að lóan sé komin og snjóinn tekur seint upp. Myndir frá Hrísey á síðum Íslendings í apríl sýna Jón Valdimarsson í Lambhaga að snjómokstri við geymsluhús K.E.A. í eynni. Þetta voru himinháir skaflar og húsið er að mestu í kafi. Enn eru miklir skaflar í eynni 26. apríl, en fljótlega eftir það hlýnar í veðri.
Þann 8. maí fer skólauppsögn fram í Hrísey. Rúmlega fimmtíu nemendur voru í skólanum. Skólastjóri var Alexander Jóhannsson og kennari Guðjón Björnsson. Auk hans voru nokkrir stundakennarar við skólann. Hæstu einkunn, 9.42 fékk Borghildur Sigurðardóttir, en hún tók nú fullnaðarpróf. Eftir prófin fóru nemendur og kennarar í skemmtiferð.
Góður afli var á línu í maí og færabátar fengu líka ágætan afla annað slagið. Grenivíkurbátar hafa  aflað vel, en þeir hafa verið á línu og landað aflanum í Hrísey. Það er  mikil vinna í frystihúsinu, því auk tíu dekkbáta sem gerðir eru út frá eynni landa bátarnir frá Árskógssandi og Hauganesi auk Grenivíkurbátanna.
Dr. Finnur Guðmundsson ásamt fjórum öðrum eru í eynni og halda áfram rannsóknum á lifnaðarháttum rjúpunnar. Finnur sagði í viðtali við Dag að nokkuð minna væri um hana í ár, svo allt bendir til þess, að hún sé komin í þá lægð, sem kemur tíunda hvert ár.
Um miðjan júní var haldinn almennur kjósendafundur í Sæborg. Frummælendur voru Ingvar Gíslason og Stefán Valgeirsson. Skemmtiatriði annaðist Karl Einarsson Gamanleikari.
Fyrsta þotan sem lendir á Akureyri flýgur inn Eyjafjörðinn. Bar hún nafnið Gullfaxi. Nú huga margir að utanlandsferðum, en gjaldeyris skammturinn er aðeins tíu þúsund krónur og það er bannað að fara með íslenska þúsund krónu seðla úr landi.
Sjómannadagurinn var haldinn hátíðlegur í Hrísey og þá opinberuðu trúlofun sína ungfrú Eygló Ingimarsdóttir Hrísey og Árni Kristinsson  sjómaður Hrísey. Nokkrum dögum síðar voru gefin saman í hjónaband ungfrú Kristrún Steinunn Sigurjónsdóttir og Smári Thorarensen. ( Til hamingju með fjörutíu ára farsæl sambönd ) Tvær stúlkur fæddust í eynni á árinu. Bera þær nöfnin Guðrún Harðardóttir og Guðrún Þorbjarnardóttir. ( Til hamingju með afmælin stelpur þegar þar að kemur og munið að allt er fertugum fært )
Enn er stöðug vinna í frystihúsinu, en nú er Jóhannes Stefánsson frystihússtjóri farinn, en við starfi hans er tekinn Albert Sigurgeirsson.
Sundkennsla fer  fram í sundlauginni og er sami sundkennarinn og s.l. ár, Halldór Gunnarsson frá Búðarnesi. Síðast liðið sumar var sundlaugin opin í þrjá mánuði og var hún mjög mikið sótt, bæði af ungum og gömlum. Að sjálfsögðu var þetta dýrt fyrirtæki, þar sem heitt vatn hafði ekki enn verið lagt í laugina og því óákveðið, hve lengi hún verður höfð opin.
Sorgin kvaddi sér líka dyra þetta árið í Hrísey. Ungur piltur, Hermann Jónasson lést í Hrísey um sumarið. Hann var aðeins átján ára gamall. Þá létust síðsumars, heiðursmennirnir Njáll Stefánsson og Þorgils Baldvinsson. Blessuð sé minning þessara  Hríseyinga.
Enn er unnið er við nýja hafnargarðinn. Um mánaðarmótin ágúst- september er hann orðinn 150 m langur. Þá er verið að byggja póst og símahús fyrir  sjálfvirka stöð í eynni. Af þessu má sjá að nóg er að gera, því bátarnir afla vel af ufsa og frystihúsið hefur ekki undan og sagt er frá því nokkru síðar í blöðunum að allar frystigeymslur í Hrísey  séu fullar og að þrjú skip hafi komið til eyjarinnar dag eftir dag til þess að taka fiskafurðir. Þar er líka sagt frá því að vinna við hafnargarðinn gangi mjög vel og að símstöðvarhúsið sé risið. Þá er sagt frá því að Finnur og hans menn séu að merkja rjúpurnar í eynni.
Allt sumarið var beðið eftir að síldin léti sjá sig, en það var ekki fyr en komið var fram í október að síld barst til eyjarinnar. 11. október er verið að salta síld í Hrísey. Þá var áður búið að salta í 530 tunnur.
8. nóvember þegar Goðafoss kom hingað til þess að taka frosinn fisk, stóð hann fastur þegar hann ætlaði að leggja frá, enda lágsjávað. Hafnarvörðurinn, Hilmar Símonarson, varaði skipstjórann við því að hreyfa skipið fyrr en á flóði og bannaði það. Var því ekki sinnt og var skipsskrúfan látin ganga svo mjög að skemmdir urðu á hafnarmannvirkjum. Sandur grófst undan stálþili bryggjunnar og rann uppfyllingarefnið þá út, en bryggjudekkið brotnaði og seig niður. Er hluti bryggjunnar því algjörlega ónothæfur. Skemmdir þessar eru miklar og valda  vanda fyrir Hríseyinga, einkum í sambandi við útskipun á fiskiafurðum. Er nú hafinn undirbúningur að endurbyggingu bryggjunnar. Björgvin frá Siglufirði er væntanlegur til að dæla og fylla bryggjuna á ný.
Þann 20. nóvember varð stórtjón af óveðri í Hrísey. Fjórar trillur sukku og brotnuðu þær allar meira og minna og ein er talin ónýt. Veðurhæðin var feikileg þannig að menn mundu ekki eftir öðru eins. Rokið stóð af suðvestri og sjógangurinn var mikill. Gróf undan hinum nýja garði, sem Baldur Sigurðsson hefur verið að gera í eynni. Þá fauk allt lauslegt og brotnuðu skjólveggir kring um garða. Veðrasamt er á landinu þessar vikurnar og enn er spáð ofsa, svo að betra er að vera við öllu búinn segir í fréttum Íslendings og Dags af þessum veðraham í Hrísey.
Þess má geta að á þessum tíma voru bátarnir í Hrísey geymdir við legufæri úti á Lambhagavíkinni og var farið á milli á litlum flatbotna bátum sem kallaðar voru, Gonnur. Hvergi annarstaðar á landinu er þetta orðatiltæki notað um báta. Um þetta orti Gísli Jónsson sem sá um málfarsþætti í Morgunblaðinu um margra ára skeið.   (Ekki er vitað hvort hér er átt við Konráð Alfreðsson formann Sjómannafélagsins.)

                     Gagnmerk í Hrísey var, gonna,
                     ég giska á þrjátíu tonna.
                     Og sætustu meyjar,
                     þeirrar ágætu eyjar
                     voru æstar í róður með Konna.                    

                                           
Nú líður á árið og undirbúningur að jólahátíðinni er hafinn eins og segir í fréttum frá þessum tíma. Í byrjun desember kemur enn á ný hörkuveður og rafmagnið er óstöðugt og myrkur ríkir af og til í eynni. Hver situr sem fastast heima hjá sér þessa daga. En nokkru síðar hefur kvenfélagið kaffiklúbb og  Verkalýðsfélag Hríseyjar bingó og nokkrir áhugasamir menn eru með Framsóknarvist.
Síðar í mánuðinum er haldin sæluvika. Þá er dansað á hverju kvöldi að heita má. Það eru einkum ungmennafélagið og kvenfélagið sem stóðu fyrir þessum skemmtunum, eins og venja er á þessum árstíma  í eynni.
Þá er lokið upptalningu á því sem gerðist í Hrísey á árinu 1967. Eflaust hefur margt annað gerst í eynni, en þennan fróðleik hef ég fram að færa á síðu Markaðsráðs Hríseyjar að þessu sinni. Ég færi öllum þeim sem þetta lesa góðar kveðjur. Hrísey lengi lifi.

                    Þorsteinn G. Þorsteinsson (Steini rjúpa).
                                                                                                    

Framsetning efnis

Hrísey | -1.1°C | 3 m/s
contact
sitemap
moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf