Hér er hægt að sjá þá viðburði sem eru á dagskrá í eynni.
Flýtilyklar
Viðburðir
laugardagur 26.maí 2012
Hreinsunardagur í Hrísey
Hinn árlegi hreinsunardagur verður laugardaginn 26. maí. Mætum hjá Hlein kl. 10.00 og hjálpumst að við að hreinsa eyjuna okkar. Að venju verður grillað í lokin.
föstudagur 13.júlí 2012
Fjölskyldu- og Skeljahátíð 2012
Verður haldin aðra helgina í júlí þ.e. 13.-15. júlí.
laugardagur 04.september 2010
Söfnunar- og skemmtidagur laugardaginn 4. september.
Hinn árlegi söfnunardagur verður laugardaginn 4. september. Endilega takið daginn frá.
Seldar verða vöfflur á svæðinu yfir daginn frá kl. 14.00, það er Leikklúbburinn Krafla sem mun sjá um kaffið að þessu sinni og rennur allur ágóði af sölunni til Sæborgar.
Kveikt verður upp í grillunum kl 18.00 og hægt verður að kaupa sér ljúffengan kvöldmat, á matseðlinum er:
Grillaður fiskur frá Hvammi, skel og franskar frá Norðurskel og hamborgarar fyrir börnin. Með þessu verður hægt að fá eitthvað ljúffengt að drekka.
Allur ágóði mun renna til góðra málefna í Hrísey.
Einhverjar uppákomur munu verða á sviðinu og ef einhver lumar á einhverju skemmtilegu sem við megum fá að njóta er það bara gaman.
Veðurspáin er hreint út sagt stórkostleg og er það ósk okkar að sem flestir komi á svæðið og að við eigum góðan dag saman, langt fram á kvöld.

























