Hér er hægt að sjá þá viðburði sem eru á dagskrá í eynni.
Flýtilyklar
Viðburðir
laugardagur 04.september 2010
Söfnunar- og skemmtidagur laugardaginn 4. september.
Hinn árlegi söfnunardagur verður laugardaginn 4. september. Endilega takið daginn frá.
Seldar verða vöfflur á svæðinu yfir daginn frá kl. 14.00, það er Leikklúbburinn Krafla sem mun sjá um kaffið að þessu sinni og rennur allur ágóði af sölunni til Sæborgar.
Kveikt verður upp í grillunum kl 18.00 og hægt verður að kaupa sér ljúffengan kvöldmat, á matseðlinum er:
Grillaður fiskur frá Hvammi, skel og franskar frá Norðurskel og hamborgarar fyrir börnin. Með þessu verður hægt að fá eitthvað ljúffengt að drekka.
Allur ágóði mun renna til góðra málefna í Hrísey.
Einhverjar uppákomur munu verða á sviðinu og ef einhver lumar á einhverju skemmtilegu sem við megum fá að njóta er það bara gaman.
Veðurspáin er hreint út sagt stórkostleg og er það ósk okkar að sem flestir komi á svæðið og að við eigum góðan dag saman, langt fram á kvöld.
mánudagur 26.júlí 2010
Uppfærð heimasíða
Þessa dagana er unnið að því að uppfæra heimasíðuna. Hægt er að senda fyrirspurnir á hrisey@hrisey.net
laugardagur 15.maí 2010
Grautardagur
Laugardaginn 15. maí verður síðasti grauturinn í bili en við byrjun aftur að borða graut saman í haust. Nú er bara að mæta í Hlein í hádeginu á laugardag og eiga notalega stund saman. Sjáumst hress og kát, allir velkomnir.
Stjórn Ferðamálafélagsins.
miðvikudagur 05.maí 2010
Frábært framtak hjá nemendum Hríseyjarskóla
Nemendur eldri deildar Hríseyjarskóla sendu á dögunum bréf á alþingismenn og helstu fréttaveitur landsins vegna verkefnisins Reyklaus bekkur á vegum Lýðheilsustofnunnar. Töluverð umræða hefur verið um bréfið í fjölmiðlum og var Reynir Þrastarson í útvarpsviðtali vegna þess.
Bréfið má lesa hér











