Hér er hægt að sjá þá viðburði sem eru á dagskrá í eynni.
Flýtilyklar
Viðburðir
sunnudagur 19.maí 2013
Myndlistarsýning um Hvítasunnuna
Rjúpumyndir í salthúsinu hjá Bigga bakara.
Opið sunnudag og mánudag kl. 14.00 - 18.00.
Opið sunnudag og mánudag kl. 14.00 - 18.00.
föstudagur 17.maí 2013
Pub Quiz í Brekku
Föstudaginn 17. maí verður Eurovision Pub Quiz kl. 21.00.
Nú er bara að leita upplýsinga um keppnina síðustu 57 árin.
Mætum öll og höfum gaman saman.
Brekka.
Nú er bara að leita upplýsinga um keppnina síðustu 57 árin.
Mætum öll og höfum gaman saman.
Brekka.
laugardagur 04.september 2010
Söfnunar- og skemmtidagur laugardaginn 4. september.
Hinn árlegi söfnunardagur verður laugardaginn 4. september. Endilega takið daginn frá.
Seldar verða vöfflur á svæðinu yfir daginn frá kl. 14.00, það er Leikklúbburinn Krafla sem mun sjá um kaffið að þessu sinni og rennur allur ágóði af sölunni til Sæborgar.
Kveikt verður upp í grillunum kl 18.00 og hægt verður að kaupa sér ljúffengan kvöldmat, á matseðlinum er:
Grillaður fiskur frá Hvammi, skel og franskar frá Norðurskel og hamborgarar fyrir börnin. Með þessu verður hægt að fá eitthvað ljúffengt að drekka.
Allur ágóði mun renna til góðra málefna í Hrísey.
Einhverjar uppákomur munu verða á sviðinu og ef einhver lumar á einhverju skemmtilegu sem við megum fá að njóta er það bara gaman.
Veðurspáin er hreint út sagt stórkostleg og er það ósk okkar að sem flestir komi á svæðið og að við eigum góðan dag saman, langt fram á kvöld.

























