Hrísey - Viðburðir

Söfnunar- og skemmtidagur laugardaginn 4. september. Hinn árlegi söfnunardagur verður laugardaginn 4. september. Endilega takið daginn frá.

Söfnunar- og skemmtidagur laugardaginn 4. september.

Hinn árlegi söfnunardagur verður laugardaginn 4. september. Endilega takið daginn frá.

Seldar verða vöfflur á svæðinu yfir daginn frá kl. 14.00, það er Leikklúbburinn Krafla sem mun sjá um kaffið að þessu sinni og rennur allur ágóði af sölunni til Sæborgar.

Kveikt verður upp í grillunum kl 18.00 og hægt verður að kaupa sér ljúffengan kvöldmat, á matseðlinum er:
Grillaður fiskur frá Hvammi, skel og franskar frá Norðurskel og hamborgarar fyrir börnin. Með þessu verður hægt að fá eitthvað ljúffengt að drekka.

Allur ágóði mun renna til góðra málefna í Hrísey.

Einhverjar uppákomur munu verða á sviðinu og ef einhver lumar á einhverju skemmtilegu sem við megum fá að njóta er það bara gaman.

Veðurspáin er hreint út sagt stórkostleg og er það ósk okkar að sem flestir komi á svæðið og að við eigum góðan dag saman, langt fram á kvöld.

 



Dagatal

« Febrúar 2012 »
SMÞMFFL
 1234
5678910
11
12131415161718
19202122232425
26272829 

Mynd augnabliksins

Framsetning efnis

Hrísey | -3°C | 2 m/s
contact
sitemap
BrekkaSagaTravel
moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf